Meðalfellsvatn í Kjós

Staðsetning:

Meðalfellsvatn er í Kjósarhreppi. 

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík:

Um 50 km. akstur er frá Reykjavík.  Keyrt er inn í Hvalfjörð rétt áður en komið er að Hvalfjarðargöngum.  Síðan er beygt til hægri og ekið frá Hvalfirði um veg nr. 461 sem liggur að vatninu.

Upplýsingar um vatnið:

Vatnið er um 2 km2 að stærð og um 18 m. djúpt þar sem það er dýpst.  Vatnið stendur í 46 metra hæð yfir sjávarmáli.  Í vatnið renna Sandsá og Flekkudalsá en úr því fellur Bugsa sem rennur í Laxá í Kjós.  Lax og sjóbirtingur gengur úr Laxá í gegnum Bugðu og í vatnið. 

Veiðisvæðið:

Heimilt er að veiða í öllu vatninu.  Bannað er þó að veiða nær ósum en 50 metra.

Gisting:

Hægt er að kaupa gistingu í nágrenninu.  Má þar nefna Ferðaþjónustuna Hjalla og Eyrarkort.  

Veiði:

Mest veiðist af smábleikju, en einnig nokkur urriði, sjóbirtÍngur og lax.  Urriðinn veiðist best fyrrihluta sumars.  Lax gengur oft hratt upp í vatn og hafa menn veitt grálúsuga laxa upp í vatni þannig að mögulegt er að veiða lax frá miðju sumri og út veiðitímabilið.  Þar sem mikið er af smábleikju í vatninu hentar það mjög vel fyrir ungviðið.

 

Daglegur veiðitími:

Veiðitími hefst kl. 7.00 og honum lýkur kl. 22.00

 

Tímabil:

Frá byrjun 1. apríl og fram til 20. september.

 

Agn:

Allt löglegt agn: Fluga, maðkur og spónn.

 

Besti veiðitíminn:

Frá miðjum júní og fram í miðjan ágúst.

 

Annað:

Mjög þægilega aðkoma er á vatninu og er tilvalið fyrir fjölskylduna að skjótast í vatnið til veiða.

 

Reglur:

Snyrtileg umgengni er skilyrði og bannað er að skilja eftir rusl við vatnið.

Allur akstur utan vega og slóða er stranglega bannaður og verður slíkt athæfi kært til  lögreglu.  Veiðikortshafar sem valda umhverfisspjöllum eru ábyrgir gagnvart landeiganda.  Hægt er að kaupa dagleyfi og Veiðikortið á bænum Grjóteyri.

Veiðiskýrslur er einnig hægt að sækja á vef Veiðikortsins og prenta út.  Ef veiðist fiskur, sem er merktur Veiðimálastofnun, ber að geta þess í veiðiskýrslu. 

Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.


LÖG OG RÉTTUR VIÐ MEÐALFELLSVATN - UPPLÝSINGAR FRÁ WWW.KJOS.IS     http://www.kjos.is/allar-frettir/nr/72056/  

Uppá síðkastið hefur orðið vart nokkrar misklíðar varðandi framkvæmdir og umgengni við Meðalfellsvatn. Annarsvegar  lítur ágreiningurinn að leyfisskyldum framkvæmdum við vatnið, sem gerðar hafa verið athugasemdir við og hinsvegar umgengni og rétt veiðimanna til að athafna sig við vatnið.

Vert er að minna á helstu reglur sem gilda varðandi ofangreint.

Meðalfellsvatn er á Náttúruminjaskrá og nýtur sérstakrar verndar. Í aðalskipulagi er  50 m. breið ræma umhverfis vatnið skilgreint sem “opið svæði” þar sem ekki er gert ráð fyrir mannvirkjagerð m.t.t. undantekningum.

Allar framkvæmdir við vatnið eru leyfisskildar til byggingar-og skipulagsyfirvalda í Kjósarhreppi samkvæmt skipulags-og byggingarlögum, lögum um lax og silungsveiði og náttúruverndarlögum. Gildir þar einu hvort um sé að ræða hverskonar byggingar eða röskun á fjöruborði með greftri eða efnisburði í vatnið og í fjöru þess.

Þá er rétt að árétta að öll lögmæt umferð gangandi manna er heimill umhverfis vatnið og óheimilt er að framkvæma nokkuð það sem hindrar  slíka umferð. Þurfi að girða í vatn út, skal hlið eða stigi vera á girðingunni. Veiðimenn eru því í fullum rétti til veiða, hvort sem er á vatnsbakka framan við sumarhús eða hvarvetna annarstaðar.

Umferð ökutækja er hinsvegar óheimil utan hefðbundinna slóða og í fjöru vatnsins einsog hver annar utanvegaakstur.

Nálgast rafræna veiðiskýrslu Fáðu þér veiðikortið

Myndir

Cezary 11.4 2010
Veiði í apríl 2009 - Cezary Fijalkowski
26. apríl 2008 - IB
Hjörleifur - 20. apríl Meðalfellsvatn
Cezary 11.4 2010
Stjáni Ben - 3. maí 2009
ESE
26. apríl 2008 - IB
26. apríl 2008 - IB
26. apríl 2008 - IB
Cezary 21. apríl 2008
Veiði í apríl 2009 - Cezary Fijalkowski
Veiði í apríl 2009 - Cezary Fijalkowski
26. apríl 2008 - IB
Veiði í apríl 2009 - Cezary Fijalkowski
26. apríl 2008 - IB
Cezary 21. apríl 2008

Skilaboðaskjóðan

Segðu þína skoðun

Skilabod Er veiðikortið sammála því að það sé lokað fyrir göngu lax upp í Meðalfellsvatn með stíflu eins og er gert.

Nafn Þorlákur Jóhannsson | 18. ágú. 2010 kl: 01:16

Það er hægt að kaupa stakann dag á bænum Grjóteyri.... ca. 2000 kr. dagurinn ef að ég man rétt.

Veiðikortið | 16. ágú. 2010 kl: 08:32

hvar er best að veiða í vatninu

jón eðvald | 14. ágú. 2010 kl: 09:25

Skilabod Hvað kostar að veiða í Meðalfellsvatni

Eyjólfur Jónsson útlendingur | 21. júl. 2010 kl: 12:24

Þarf að eiga viðikortið til að fá að veiða í vatninu??

Kristinn Ágústsson | 04. jún. 2010 kl: 09:43

Skilabod Fa öryrkjar að veiða fritt ?

NafnÞorkell Þorkelsson | 29. maí 2010 kl: 12:09

Er það ekki rétt hjá mér að vöðlubátar (bellyboats) eru leyfðir á Meðalfellsvatni?

Jónsi | 17. maí 2010 kl: 11:16

Löglegt agn fyrir handhafa Veiðikortsins er eingöngu fluga, maðkur og spónn! Svo einfalt er það.

Veiðikortið | 26. apr. 2010 kl: 02:27

Skilabod Er aðstaða fyrir hjólhýsi á staðnum??

Nafn Hrafnhildur Geirsdóttir hgQubr.is | 09. jún. 2009 kl: 12:18

Skilabod Er markríll og síld löglegt agn í Meðalfellsvatni? Hef veitt í vatninu í 10 ár en sá þetta agn fyrst síðasta vor eftir tilkomu veiðkortsns og finnst það ekki til bóta.

Nafn Eyþór Björgvinsson | 20. mar. 2009 kl: 06:24

Efnisyfirlit

Leitarvél