Staðsetning:
Ölversvatn (Vatnasvæði Selár) er á Skagaheiði, Skefilsstaðahreppi í Skagafirði.
Upplýsingar um vatnasvæðið:
Ölvesvatnið er langstærsta vatnið á vatnasvæðinu, en einnig má veiða í Fossvatni, Selvatni, Grunnutjörn, Andavatni og Stífluvatni sem og í lækjum sem renna á milli vatna. Ölvesvatnið er um 2,8 km2 að stærð og nokkuð djúpt.
Leiðarlýsing og fjarlægð frá Rvk. og næsta bæjarfélagi.
Fjarlægð er um 366 km. frá Reykjavík og 40 km. frá Sauðárkróki. Afleggjarinn frá Hvalnesi er um 6 km. að Ölvesvatni og er hann einungis fær fjórhjóladrifnum fólksbílum og jeppum.
Veiðisvæðið:
Veiði er heimil á öllu vatnasvæðinu, þ.e.a.s. Ölvesvatni, Fossvatni, Selvatni, Heyvötnum, Grunnutjörn, Andavatni, Stífluvatni sem og í lækjum sem renna á milli vatnanna.
Gisting:
Hægt er að leigja veiðihús með eldunaraðstöðu og tekur húsið 6 manns í gistinu. Þar er kamar. Á bænum Hvalnesi er einnig hægt að leigja svefnpokapláss á rishæð í sér húsi fyrir allt að 6 manns. Þar er einnig hægt að elda auk þess sem snyrtiaðstaða og sturta er á staðnum sem og aðstaða til að frysta og gera að afla. Einnig skal bent á að hægt er að láta reykja aflann hjá Hvalnesbændum. Öruggast er að panta gistingu með fyrirvara hjá Bjarna eða Elínu í Hvalnesi (453-6520).
Veiði:
Á vatnasvæðinu er bæði bleikja og urriði. Vel hefur verið staðið að grisjun á smábleikju á svæðinu sem hefur aukið á meðalþyngd veiddra fiska. Mikið er af ½ -3 punda fiski á vatnasvæðinu sem og urriða sem getur orðið allt að 6-7 pund.
Daglegur veiðitími:
Heimilt er að veiða allan sólarhringinn.
Tímabil:
Veiðitímabilið veltur öllu jöfnu á veðri en yfirleitt er ekki orðið fært upp að vatni fyrir en seinnihluta maí og stendur veiðitíminn yfirleitt fram í miðjan september en þá veiðist minna af bleikjunni.
Agn:
Allt löglegt agn er leyfilegt: Fluga, maðkur og spónn. Góð aðstaða er til fluguveiða.
Besti veiðitíminn:
Veiði er nokkuð jöfn yfir daginn.
Reglur:
Handhöfum Veiðikortsins ber að skrá sig í Hvalnesi. Sýna þarf Veiðikortið og skilríki. Það er stranglega bannað að skilja eftir sig rusl og aka utan vega. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Í Hvalnesi fá veiðimenn veiðiskýrslur til útfyllinga sem og upplýsingar um svæðið. Veiðiskýrslum ber að skila við lok veiða í Hvalnesi.
Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum:
Bjarni Egilsson og Elín Guðbrandsdóttir, Hvalnesi, s: 453-6520