Hópið í Húnavatnssýslu

Hópið í Húnavatnssýslu

Staðsetning:

Hópið er á mörkum Austur- og Vestur- Húnavatnssýslna.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi:

Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 235 km og  að norðan 25 km frá Blönduósi. Þegar komið er að sunnan  er ekið 12 km lengra en afleggarinn á Hvammstangavegamótum og beygt til vinstri þegar komið er að afleggjera sem á stendur Vatnsnes vegur nr. 711 . Einnig er hægt að keyra framhjá Víðigerði og beygja inn afleggjarann inn að Borgarvirki sem er vegur nr. 716.  Einnig er hægt að veiða Þingeyramegin og er þá ekið í beygt af þjóðvegi nr. 1 hjá Sveinstöðum í átt að Þingeyrakirkju.

Upplýsingar um vatnið:

Hópið er fimmta stærsta stöðuvatn landsins. Þingeyrarsandur skilur Hópið frá hafi. Vatnið er um 29 km2. til 44 km2 að flatarmáli eftirsjávarföllum.Veiði er heimil í öllu vatninu. Vinsælustu veiðisvæðin eru við Ásbjarnarnes, Skollanes og út með Myrkubjörgum. Austanmegin við vatnið er gott að veiða Refsteinsstaði og Gljúfurá en bannað er að veiða í ósum. Einnig veiðist vel á söndunum Þingeyramegin. Fyrst á vorin ber að varast að aurbleyta getur verið í slóðum og er þá frekar mælt með því að menn gangi síðustu metrana inn að vatni. Heimilt er að tjalda við vatnið á eigin ábyrgð en engin hreinlætisaðstaða er á svæðinu. Hægt er að kaupa gistingu á Hótel Borgarvirki og Víðigerði. Einnig er notalegt að gista í smáhýsum á Dæli. Þangað er u.þ.b. 30 mínútna akstur.Staðbundin bleikja, sjóbleikja, sjóbirtingur og töluvert af laxi veiðist ár hvert í Hópinu enda gengur mikið af laxi í gegnum Hópið í  Víðidalsá og Gljúfurá. Sjóbleikjan getur verið væn enda sami stofninn og veiðist í Víðidalsá. Einnig veiðist mikið af fallegum sjóbirtingi í vatninu.

Daglegur veiðitími:


12 klukkustundir á dag en veiðitíminn er frjáls.Veiði er heimil frá því ísa leysir til 15. september. Fluga, maðkur og spónn.

Besti veiðitíminn:

Veiðin er nokkuð jöfn yfir árið en oft veiðist best í maí og fram í miðjan júlí. Einnig er fínt að veiða sjóbirtinginn í ágúst og fram í september.Hægt er að skoða myndir á vef Veiðikortsins.

Annað:

Gaman er að skoða Borgarvirki og Hvítserk, sem er skammt frá Hópinu eða fara á selaslóðir um Vatnsnes. Að austan eru Þingeyrakirkja og Þrístapar áhugaverðir sögustaðir.

Reglur:

Vinsamlegast skiljið ekki eftir rusl og stranglega bannað er að aka utan vega. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Veiðimenn fara beint inn að vatni og hafi Veiðikortið við höndina þegar veiðivörður vitjar veiðimanna. Veiðimönnum ber að skila veiðiskýrslum á netinu, www.veidikortid.is eða skrá veiði í veiðibók sem staðsett verður í kassa við afleggjann að Ásbjarnarnesi.

Nálgast rafræna veiðiskýrslu Fáðu þér veiðikortið

Myndir

Brynjar Ingólfsson með glæsilegan sjóbirting frá 10.7 2010
Ólafur Sigfús
Ólafur Sigfús Benediktsson, 13. maí 2010
Sergie 23.5.2010

Skilaboðaskjóðan

Segðu þína skoðun

Góðan dag ég skrapp í Hópið í gær og var nú ekki mikið var en alltaf gaman að skreppa þangað en ég vildi koma á framfæri og vara menn við því að þarna voru hestar, ég kom að 2 hestum að vesenast í kringum bílinn þegar ég kom til baka en slapp sem betur fer við tjón, vildi bara láta vita þannig að menn viti af því að þarna geta verið hestar..

Jackson | 27. ágú. 2011 kl: 09:10

Skilabod

NafnÞorbjörg | 04. ágú. 2011 kl: 01:40

Skilabod

NafnSvandís | 04. ágú. 2011 kl: 01:37

Skilabod

NafnGuðmundur Þorsteinsson | 24. júl. 2011 kl: 01:53

vorum í hópinu í 3 daga 7 manns og fengum ekki bröndu frekar en hinir 20 sem voru að veiða vítt og breytt um vatnið, en annars ef að einhver hefur fundið bazuca stangarhóllk með stöng í einhversstaðar út með myrkurbjörgum og langar að skila honum þá er síminn minn 822-5507.

Guðmundur | 10. sep. 2010 kl: 07:31

ég fór um helgina og veidi tvo litla urriða. hinnsvega var fullt að fiskum að stökkva (og sumir voru nokuð stórir.

addi | 07. sep. 2010 kl: 05:26

Fór aftur að veiða í Hópinu og var endalaust um fiska að stökkva allt í kringum okkur. Þeir bitu reyndar lítið á, náðum bara einum en hann var 2,8 pund. Sáum fullt af mun stærri fiskum að stökkva.

Brynjar | 04. ágú. 2010 kl: 10:52

Skilabod Vorum að koma úr Hópinu eftir frábæra helgi með góðu fólki. Vorum með 9 fiska, sá stærsti um 3,5 pund, vorum á Ásbjarnarnesi og á bryggjuni. Það sem angraði mig mest var ruslatunnan á Ásbjarnarnesinu, hún var full af rusli og allt um kring, sem vargurinn á góðan aðgang að og er bara sóðaleg. Annars er fólki ekki vorkun að fara heim með ruslið sitt og/eða henda í næsta ruslagám. Einnig vil ég hvetja fólk til að ganga betur um og hirða upp bjórdósir og beytubox. Ég held að með slæmri umgengni verður flótlega rukkað hærra fyrir veiðikortið og / eða hætt með það.

Nafn Kolbrún | 02. ágú. 2010 kl: 10:01

Ég fór um nótt síðustu helgi og veiddi 4 sjóbirtinga. Stærsti var 5,5 pund - 63cm á lengd. Kom mér frekar mikið á óvart að veiða svona fína sjóbirtinga þarna.

Brynjar | 14. júl. 2010 kl: 01:36

Það vantar uppl.um hvar korthafar eiga að tilkynna sig.Símanúmer.

Gísli | 16. apr. 2009 kl: 08:36

Efnisyfirlit

Leitarvél