Ljósavatn í Suður-Þingeyjasýslu

Ljósavatn í Suður-Þingeyjasýslu

Staðsetning:

Ljósavatn er í Ljósavatnsskarði, Suður-Þingeyjarsýslu, rétt austan við Akureyri.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta nágrenni.

Ekið er í gegnum Akureyri í átt til Húsavíkur. Vatnið er í um 40 km fjarlægð frá Akureyri og um 430 km frá Reykjavík sé ekið um Hvalfjarðargöng.

Upplýsingar um vatnið:

Ljósavatn er í 105 m hæð yfir sjávarmáli og mælist um 3,2 km2 að flatarmáli. Mesta dýpi er um 35m og er meðaldýpi um 10 m. Það er mjög vinsælt meðal veiðimanna og mjög hentugt fyrir fjölskyldur. Þjóðvegur 1 liggur meðfram vatninu. Í Ljósavatn falla margir lækir og má þar nefna Geitá og Litlutjarnalæk, en úr vatninu fellur Djúpá.

Veiðisvæðið:

Heimilt er að veiða í öllu vatninu.

Gisting:

Ekki er heimilt að tjalda við vatnið nema í samráði við landeigendur. Engin hreinlætisaðstaða er á svæðinu.

Veiði:

Í vatninu fæst einkum bleikja sem er yfirleitt 0,5 – 1,5 pund. Einnig er töluvert af urriða í vatninu og getur hann orðið vænn.

Daglegur veiðitími:

Veiðitími er frjáls.

Tímabil:

Veiðitímabilið stendur yfir frá 20. maí til 30. september.

Agn:

Allt löglegt agn: Fluga, maðkur og spónn.

Besti veiðitíminn:

Jafnan veiðist best á vorin, frá maí og fram í miðjan júlí.

Reglur:

Korthöfum er skylt að skrá sig hjá veiðiverði og fá afhenta veiðiskýrslu sem þarf að skila við lok veiði. Veiðimenn og útivistarfólk er vinsamlegast beðið að ganga vel um svæðið. Óheimilt er að aka utan vega. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd korthafa.

Veiðivörður/umsjónarmenn á staðnum:

Sigurður Birgisson og Hulda Svanbergsdóttir, Krossi GSM: 894-9574 og 868-1975. Helgi Ingason, Vatnsenda GSM: 692-8125 og 464-3249.

Nálgast rafræna veiðiskýrslu Fáðu þér veiðikortið

Myndir

Ljósavatn 18. júní 2007
Ljósavatn 18. júní 2007
Ljósavatn 18. júní 2007
Veiðimaður með fisk á í Ljósavatni 18. júní 2007
Veiðimaður með fisk á í Ljósavatni 18. júní 2007
Veiðimaður með fiska í Ljósavatni 18. júní 2007
Myndir frá Matthíasi - Ljósavatn í maí 2007
Ljósavatn
Ljósavatn 1. maí 2006
Urriði úr Ljósavatni 2006
Myndir frá Matthíasi - Ljósavatn í maí 2007
Myndir frá Matthíasi - Ljósavatn í maí 2007
Myndir frá Matthíasi - Ljósavatn í maí 2007
Myndir frá Matthíasi - Ljósavatn í maí 2007

Skilaboðaskjóðan

Segðu þína skoðun

Er eithvað byrjað að fara í ljósavatn??

Óli | 13. maí 2012 kl: 11:29

Hvernig fer þetta af stað í ljósavatni? Er eitthvað líf

Kjartan | 04. maí 2012 kl: 10:07

Fór í gær og fékk tvær bleikjur á flugu rétt utan við ósinn þar sem rennur úr vatninu. Líklega hægt að gera góða veiði þar ef aður dettur niður á réttu fluguna og og er með puttann á línunni.

Hrannar | 11. jún. 2010 kl: 09:43

Fór í ljósavatn 17 júlí varð ekki var við einn einast fisk.

Kjartan | 27. júl. 2009 kl: 11:43

fékk 8 urriða 2 yfir 6 pund 3 umm 3-4 pund hitt minna og allir teknir a stirðu flugu eftir mig

marino | 17. júl. 2009 kl: 12:01

líst ekkert á alla þessa hvítu orma sem allir eru að tala um??

benni | 13. júl. 2009 kl: 08:24

Fór í Ljósavatn í lok síðustu viku... varð ekki var við einn einasta fisk vaka í ljósaskiptunum. Ræddi við bónda á staðnum sem sagði að það kæmi heldur enginn fiskur í net... Fór einnig í Kringluvatn en það var yfirfullt af fiski, tók um 20 stykki en sleppti þeim öllum þar sem þeir voru of litlir...

Beggi | 13. júl. 2009 kl: 11:59

Efnisyfirlit

Leitarvél