Haugatjarnir í Skriðdal

Haugatjarnir í Skriðdal

Staðsetning: 

Haugatjarnir eru í Skriðdal.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi.

Frá Reykjavík eru um 650 km. og um 35 km. til Egilsstaða.  Tjarnirnar eru við bæinn Hauga sem stendur við þjóðveg eitt.

Upplýsingar um vatnasvæðið:

Um er að ræða tvær tjarnir, sem eru mjög hentugar  fyrir fjölskyldur.  Þær eru ekki stórar en mjög aðgengilegar. Þar er mikið af fiski og því sérstaklega skemmtilegar fyrir ungu kynslóðina.  Mikið og gott berjaland er í nágrenninu.

Veiðisvæðið: 

Veiði er heimil í báðum tjörnunum. 

Gisting:

Handhafar Veiðikortsins hafa heimild til að tjalda endurgjaldslaust við vatnið, á eigin ábyrgð. Taka skal fram, að hvorki er þar að finna skipulagt tjaldstæði né hreinlætisaðstöðu.

Veiði: 

Einungis urriði veiðist í tjörnunum.

Daglegur veiðitími: 

Leyfilegt er að veiða allan sólarhringinn.

Tímabil:

Veiði er heimil frá 1. maí til 30. september.

Agn: 

Allt löglegt agn:  Fluga, maðkur og spónn.

Besti veiðitíminn:

Jöfn veiði allt tímabilið.

Reglur: 

Vinsamlegast skiljið ekki eftir rusl og stranglega bannað er að aka utan vegar.  Handhafar Veiðikortins þurfa að skrá kortanúmer og kennitölu hjá umsjónarmanni, Hugrúnu Sveinsdóttur á Haugum.  Börn yngri en 14 ára veiða frítt.

Veiðivörður / umsjónarmaður:

Hugrún Sveinsdóttir, Haugum, s: 471-1819.

Sjálfvirk veðurathugunarstöð:

http://www.vedur.is/vedur/athuganir/kort/austfirdir/#station=4271


Nálgast rafræna veiðiskýrslu Fáðu þér veiðikortið

Myndir

Einar Hróbjartur Jónsson
Einar Hróbjartur Jónsson
Einar Hróbjartur Jónsson
Haugar
Haugatjarnirnar
Bærinn Haugar

Skilaboðaskjóðan

Segðu þína skoðun

Skilabodfengum fisk fyrir mðrgum árum mikið moldarbragð en gaman samt

Nafn ekkert | 16. maí 2012 kl: 11:16

Fór þarna í fyrrasumar. Ótrúlegt mokfiskerí. Fékk yfir 20 fiska á rétt tæpum 2 tímum. Allir eins, um 300-400 grömm. Fínn matfiskur.

Óskar Guðmundsson | 07. maí 2011 kl: 02:34

Efnisyfirlit

Leitarvél