Sléttuhlíðarvatn í landi hrauns

Sléttuhlíðarvatn í landi hrauns

Staðsetning: 

Sléttuhlíðarvatn er við þjóðveg 76, rétt norðan við Hofsós og er jafnframt um hálftíma akstur frá Siglufirði.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 360 km., 21 km. frá Hofsósi og 50 km. frá Sauðárkróki.

Upplýsingar um vatnið:

Vatnið er 0,76 km2 að stærð og í 14 m. hæð yfir sjávarmáli. 

Veiðisvæðið: 

Eingöngu er leyfilegt að veiða í landi Hrauns.  Skilti eru við veiðimörk.

Gisting:

Handhafar Veiðikortsins geta tjaldað endurgjaldslaust og á eigin ábyrgð við vatnið í samráði við landeiganda.  Einnig er hægt að leigja sumarhús nálægt vatninu og brogar sig að panta það með góðum fyrirvara hjá veiðiverði.

Veiði: 

Í vatninu eru bæði sjógengnir og staðbundnir fiskar. Sjóbleikja og urriði veiðast þar í miklu magni. 

Daglegur veiðitími: 

Leyfilegt er að veiða frá kl. 8 til kl. 20 eða í samráði við landeiganda (veiðivörð)

Tímabil:

Veiðitímabilið hefst 1. maí og lýkur því 20. september.

Agn: 

Allt löglegt agn: Fluga, maðkur og spónn. 

Besti veiðitíminn: 

Yfirleitt veiðist best í maí og júní, en þó ágætlega allan veiðitímann.

Annað:

Landeigandi ber enga ábyrgð á tjóni er korthafar Veiðikortsins kunna að verða fyrir, eða öðru sem upp kann að koma í tenglsum við veru veiðimanna á viðkomandi veiðisvæði.

Reglur: 

Góð umgengni er skilyrði.  Allur akstur um landið skal vera í samráði við landeigenda.  Veiðimenn eru beðnir um að skilja ekki eftir sig rusl. Korthafar þurfa að skrá sig á Hrauni og sýna þarf bæði Veiðikortið og persónuskilríki.  Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.

Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum:

Magnús Pétursson á Hrauni, s: 453-7422 eða 894-4402.

 

Nálgast rafræna veiðiskýrslu Fáðu þér veiðikortið

Myndir

Mynd frá Kára Páli 2011
Mynd frá Kára Páli 2011
Mynd frá Kára Páli 2011
Mynd frá Kára Páli 2011
Mynd frá Kára Páli 2011
Stjáni Ben
Stjáni Ben
Stjáni Ben
Stjáni Ben
Stjáni Ben
Stjáni Ben
Inga Dóra 1.7 2009
Inga Dóra 1.7 2009
Inga Dóra 1.7 2009
Inga Dóra 1.7 2009
Inga Dóra 1.7 2009
Hús sem hægt er að leigja hjá Magnúsi Péturssyni á Hrauni
Kampakátir veiðimenn með um 30 fiska í Sléttuhlíðarvatni 2006
Mynd Valdemar
Mynd Valdemar
Mynd Valdemar
Mynd Valdemar
Mynd Valdemar
Þórður Harðarson með fallega veiði úr Sléttuhlíðarvatni 22. júní 2008

Skilaboðaskjóðan

Segðu þína skoðun

Fórum 3 saman að veiða í þessu vatni. Við fengum 4 samtals á tóbý en slepptum tveimur. Vatnið var mjög grugggt. Fínasta ferð samt sem áður, á pottþétt eftir að kíkja í það aftur

Hjötti | 29. maí 2012 kl: 12:14

hvernig lítur vatnið út,

ari | 19. apr. 2012 kl: 10:55

Skilabodfrábært vatn sem gefur flotta fiska, fékk sjálfur 4 punda urriða í sumar, mæli sterklega með þessu vatni

NafnÖrn Jóhannsson | 07. júl. 2011 kl: 11:47

en magnið er á bilinu 1 15 fiskar

óli vinnumaður á hrauni | 05. júl. 2011 kl: 03:20

búið að vera mikil umferð í vatninu er hægt að tjalda ef þú vilt en flott veiði í vatninu en yfir leitt ekki stærra en 5 pund

óli vinnumaður á hrauni | 05. júl. 2011 kl: 03:19

Óhætt er að mæla með Sléttuhlíðarvatni. Nægur fiskur í vatninu og virðist vera nokkuð jöfn veiði sama hvar maður er staddur á bakkanum. Að vísu fundum við ekki eina einustu af umræddum sjóbleikjum, aðeins staðbundin urriða. Annars frábær túr og komum heim með 15 stk. á bilinu 1/2 til 1 pund.

Kristján og Þórunn | 08. júl. 2010 kl: 10:25

Komin til baka. Satt er það að fólkið á bænum er alveg frábært. Við lönduðum 30 stykkjum bæði fallegum bleikjum og urriðum eins og 2ja punda, tók bara maðkinn núna, prufuðum bæði flugu og spún, en hann leit ekki við því. Yndislegur staður og frábært vatn.

Hrafnhildur 1. júní 2010 | 01. jún. 2010 kl: 06:05

Það er mokveiði í þessu vatni. Best að vera á tanganum en annars virðist vera fiskur út um allt. Einnig er fólkið á bóndabænum mjög almennilegt. Spúnninn og flugan eru að gefa best.

Jón H. | 19. maí 2010 kl: 04:01

Erum að fara þarna um mánaðamótin, hvaða agn virkar best á þessum tíma??????

Hrafnhildur. 17.15. 2010 | 17. maí 2010 kl: 03:01

Stoppaði við vatnið í 1 og hálfan til tvo tíma á leiðinni til Siglufjarðar 9. maí og tók 11 fiska, 10 urriða og 1 bleikju, allt vænir fiskar

Óskar H. Albertsson | 10. maí 2010 kl: 05:48

Fór þangað 16 júlí og það er skemmst frá því að segja að þarna var mokveiði! Fékk 20 Urriða og eina Bleikju á rúmleg klukkutíma. Allt fiskar í kringum pundið. Litu ekki við öðru en silfruðum spinner.

Kjartan Jónsson | 27. júl. 2009 kl: 11:46

Ísinn er alveg horfinn af Sléttuhlíðarvatni, frétti af félaga mínum sem koma þarna við 1. maí og tók einn urriða til að grilla um kvöldið. Þarna er alltaf gaman að koma.

Jón Tryggvi Jökulsson | 02. maí 2009 kl: 05:10

Efnisyfirlit

Leitarvél