Svínavatn í Húnavatnssýslu

Svínavatn í Húnavatnssýslu

Staðsetning:

Svínavatn er í Húnavatnshreppi í A- Húnavatnssýslu í nágrenni við Blönduós.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi:

Frá Reykjavík eru um 240 km í vatnið. Farið er út af þjóðvegi nr. 1 við þjóðveg 724 og þaðan eru um 9 km. að vatninu.

Upplýsingar um vatnið.

Vatnið er 12km2   að stærð, í 130 m. hæð yfir sjávarmáli.  Mesta dýpi er 30 metrar.

Veiðisvæðið:

Veiðisvæðið er fyrir landi Stóra-Búrfells og Reykja, ásamt almenningi vatnsins ef menn eru með bát..  

Gisting:

Hægt er að kaupa gistingu á Hótel Húnavöllum í uppábúnum rúmum með morgunverði eða svefnpokapláss auk þess sem þar eru góð tjaldstæði. Símar: 453-5600 og 898 -4685

info@hotelhunavellir.is

Veiði:

Mest veiðist af urriða en einnig er þar töluvert af bleikju. 

Daglegur viðitími:

Leyfilegt er að veiða frá kl. 07:00 til 24:00.

Tímabil:

Veiðitímabilið stendur yfir frá 1. júní til 31. ágúst.

Agn:

Fluga maðkur og spónn.

Besti viðitíminn:

Jöfn veiði er allan veiðitímann.

Reglur:

Veiðimenn eru beðnir um að skilja ekki eftir sig rusl.  Veiðimenn skulu hafa Veiðikortið við höndina þegar veiðivörður vitjar veiðimanna.  Akstur utanvega er stranglega bannaður.

Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum.

Grímur á Reykjum 892-4012 og Jón á Stóra-Búrfelli S:  868-3750/452-7133

 

Nálgast rafræna veiðiskýrslu Fáðu þér veiðikortið

Myndir

Skilaboðaskjóðan

Segðu þína skoðun

Hefur einhver verið við veiði þarna í sumar???? Og þá hvernig hefur gengið????

Hrafnhildur. | 29. jún. 2010 kl: 02:31

Efnisyfirlit

Leitarvél