Syðridalsvatn við Bolungarvík

Syðridalsvatn við Bolungarvík

Staðsetning: 

Syðridalsvatn er í Bolungavík við Ísafjarðardjúp.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi.

Frá Reykjavík eru um 473 km. til Bolungavíkur.

Upplýsingar um vatnið:

Hér er um mjög gott veiðivatn að ræða. Það er um 1 km2 að stærð og um þrjá metra fyrir ofan sjávarmál. Þangað gengur mikið af sjógengnum fiski, s.s. sjóbleikju, sjóbirtingi og laxi.  Mest veiði hefur fengist neðan við grasbala, næst bænum Hanhóli.  Aðal veiðisvæðið hefur jafnan verið það, sem markast af bænum Miðdal og svokallaðri Selá,  sem rennur í  vatnið að suðaustan.

Veiðisvæðið: 

Veiði er heimil í öllu vatninu og meðfylgjandi not eru af nærliggjandi ám, Gilsá og Tröllá. 

Gisting:

Handhafar Veiðikortsins hafa heimild til að tjalda endurgjaldslaust við vatnið, á eigin ábyrgð. Taka skal fram, að hvorki er þar að finna skipulagt tjaldstæði né hreinlætisaðstöðu.

Veiði: 

Staðbundin bleikja, sjóbleikja, sjóbirtingur og stöku lax.

Daglegur veiðitími: 

Leyfilegt er að veiða frá kl. 7 til kl. 22.

Tímabil:

Veiði er heimil frá 1.apríl til 20. september.  Einnig er hægt að stunda dorgveiði í vatninu, þegar svo ber við, í samráði við veiðivörð.

Agn: 

Allt löglegt agn:  Fluga, maðkur og spónn.

Besti veiðitíminn:

Júlí og ágúst.

Annað: 

Hægt er að leigja bát á Hanhóli, til notkunar á vatninu.

Reglur: 

Vinsamlegast skiljið ekki eftir rusl og stranglega bannað er að aka utan vegar.  Handhafar Veiðikortins þurfa að skrá kortanúmer og kennitölu hjá umsjónarmanni, Arnþóri Jónssyni á Geirastöðum.  Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.

Veiðivörður / umsjónarmaður:

Arnþór Jónsson, s: 456-7118

Nálgast rafræna veiðiskýrslu Fáðu þér veiðikortið

Myndir

Syðridalsvatn

Skilaboðaskjóðan

Segðu þína skoðun

Efnisyfirlit

Leitarvél