Úlfljótsvatn - Vesturbakkinn

Úlfljótsvatn - Vesturbakkinn

Staðsetning:

Úlfljótsvatn er í Grafningi, sunnan Þingvallavatns. Úlfljótsvatns er efsti hluti Sogsins, milli Írafoss- og Steingrímsstöðvar. Veiðisvæðið er vestari hluta vatnsins að undanskildu því landsvæði sem Útilífsmiðstöð Skáta hefur til umráða.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík:

Um 65 km. akstur er frá Reykjavík ef farið er um Hellisheiði eða Þingvelli en 40 km. ef farin er svokölluð Nesjavallaleið.

 

Upplýsingar um vatnið:

Vatnið er bergvatn, enda afrennsli Þingvallavatns. Töluverður straumur er í vatninu þar sem gegnumrennsli er að meðaltali 90 þúsund lítrar á sekúndu. Vatnið er um 4 km2 að stærð og yfir 20 m. djúpt þar sem það er dýpst. Úlfljótsvatn stendur í 80 metra hæð yfir sjávarmáli en til samanburðar er Þingvallavatn í 100,5 metra hæð. 
Rétt er að benda á heimasíðu Veiðifélagas Úlfljótsvatns, en hún er http://ulfljotsvatn.wordpress.com/ og má þar finna frekari upplýsingar um svæðið.

 

Veiðisvæðið:

Orkuveita Reykjavíkur á jörðina Úlfljótsvatn en henni tilheyrir um helming vatnsins. Heimilt er að veiða í landi OR sem er vestari hluti vatnsins, þeim megin sem Úlfljótsvatnskirkja er, að undanskildu því svæði sem Skátarnir hafa til umráða.  Veiðisvæðið nær í norður að landamerkjum við Steingrímsstöð og í suðri að landamerkjum við Írafoss.  Merkingar aðgreina hvar má veiða. Á síðastliðnum árum gilti Veiðikortið fyrir landi Efri-Brúar, austantil við vatnið, en nú er sem fyrr segir veiðisvæðið umtalsvert stærra við vestari hluta vatnsins.

 

Gisting:

Hægt er að kaupa gistinu á skipulögðu tjaldsvæði Skátanna, en þar er mjög góð aðstaða til útilegu. Frekari upplýsingar má finna á www.ulfljotsvatn.is , meðal annars hvað snertir margs konar afþreyingu á staðnum, s.s. bátaleigu og þess háttar.

 

Veiði:

Mest veiðist af bleikju, en einnig nokkur urriði.  Algengasta stærð fiskanna er hálft til tvö pund, en veiði á stærri fiski hefur aukist hin síðari ár.

 

Daglegur veiðitími:

Veiðitími hefst kl. 7.00 og honum lýkur kl. 23.00

 

Tímabil:

Frá byrjun 1. maí og fram til 30. september.

 

Agn:

Allt löglegt agn: Fluga, maðkur og spónn.

 

Besti veiðitíminn:

Frá miðjum júní og fram í miðjan ágúst.

 

Annað:

Frábær dvalarstaður fyrir fjölskylduna að dvelja en margt er í boði á svæðinu fyrir alla meðlimi hennar.  Nánari upplýsingar á www.ulfljotsvatn.is

 

Reglur:

Snyrtileg umgengni er skilyrði og bannað er að skilja eftir rusl við vatnið.

Allur akstur utan vega og slóða er stranglega bannaður og verður slíkt athæfi kært til  lögreglu.  Veiðikortshafar sem valda umhverfisspjöllum eru ábyrgir gagnvart landeiganda.

Veiðiskýrslu ber að fylla út of skila í þar til gerðan merktan kassa við bæinn Úlfljótsvatn.  Í þeim kassa verður hægt að nálgast veiðikort og veiðiskýrslu.  Veiðiskýrslur er einnig hægt að sækja á vef Veiðikortsins og prenta út.  Ef veiðist fiskur, sem er merktur Veiðimálastofnun, ber að geta þess í veiðiskýrslu.

Ekki er heimilt að koma með eigin báta til veiða í Úlfljótsvatni.

Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.

Nánari upplýsingar um svæðið má finna á heimasíðu Veiðifélags Úlfljótsvatns með því að smella hér.

Nálgast rafræna veiðiskýrslu Fáðu þér veiðikortið

Myndir

Ásgeir Jónsson 2010
3.5 punda bleikja úr Úlfljótsvatni 1. maí 2009
Björgvin Guðmundsson, veiði 23. júní 2009
Cecilía Rán Rúnarsdóttir með 8 punda urriðann sem hún veiddi 10.júlí  ( Fyrsti fiskurinn hennar)
Halldór Ingi - Úlfljótsvatn 21.júní 2008
Stjáni Ben - 3. maí 2009
Stjáni Ben - 3. maí 2009
Stjáni Ben - 3. maí 2009
Stjáni Ben - 3. maí 2009
Úlfljótsvatn 19. júní - Krummi
Úlfljótsvatn 19. júní - Krummi
Sverrir Árni Benediktsson, 7 og 9 punda fiskar 14. maí 2011
Horft niður í "Hvammsvík".  Mynd tekin frá bílastæðinu norðan við Úlfljótsvatnskirkju. 1. maí 2008 - IB
Horft niður á svæðið fyrir framan kirkjuna og skátana. 1.maí 2008 IB
Úlfljótsvatnskirkja og falleg sandvík við hlið hennar. 1.maí 2008 IB
Horft yfir Flatey og Brúarey. 1.maí 2008 -IB
Gönguleiðin niður í fallega vík á móts við Hrútey. 1.maí 2008 IB
Slóðinn niður í Hvammsvíkina ekki ökufær. Mælum með að menn leggi á stæðinu upp á hæðin og gangi niður u.þ.b. 5 mínútur.
Séð inn í Hvammsvíkina.
Séð inn í Hvammsvíkina.
Hyldjúpt er frá tanganum.  Víkin er með sandbotni öðru megin og grýtt hinum megin.  Kjöraðstæður til veiða.
Hyldjúpt er frá tanganum.  Víkin er með sandbotni öðru megin og grýtt hinum megin.  Kjöraðstæður til veiða.
Veiðimenn að veiða í víkinni.
Sigurberg að veiða
Sigurberg að veiða
Sigurberg að veiða
Sigurberg að veiða
Unnar að hvíla sig í rokinu.
Svæðið fyrir neðan skátana.
Svæðið fyrir neðan skátana.
Svæðið fyrir neðan skátana.
Mynd tekin af vegarslóða við Dráttarhlíð.  Aðkoma frá Steingrímsstöð.
Horft niður á svæðið fyrir neðan Dráttarhlíð.  Þessi slóði liggur frá Steingrímstöðvarmegin.  Séð niður á Sauðatanga. 1. maí 2008 IB
19,2 punda urriði - 88 cm - Úlfljótsvatn 7. júní - Krummi
Leifur Sveinn 27. maí
Brandur
Brandur
Brandur
Cesary 8. júní 2008  74cm urriði úr Úlfljótsvatni
Cesary 8.júní 2008
Þorsteinn G. Kristmundsson, Úlfljótsvatn 18.05.2008.
Cezary - 20. sept 2008 12 pund

Skilaboðaskjóðan

Segðu þína skoðun

Hvar er best að veiða í vatninu

Sveinn | 20. júl. 2011 kl: 02:14

hvar er besti veiðistaður við úlfljtsvatn

andri | 21. ágú. 2010 kl: 08:24

Hef mest verið í tanganum suður af Flatey, Alma Rún virðist vera yfirburða fluga í Úlfljótsvatni.

Fannar | 16. júl. 2010 kl: 09:11

Hef mest verið í tanganum suður af Flatey, Alma Rún virðist vera yfirburða fluga í Úlfljótsvatni.

Fannar | 16. júl. 2010 kl: 07:45

Hvar eru menn helst að veiða þarna? Sé oft að menn eru við kirkjuna. Ég hef helst verið þarna við stífluna. Önnur spurning, hvaða flugu eru menn helst að veiða á?

Sigfús | 03. júl. 2010 kl: 06:25

Fór í Úlfljótsvatn í gær, Sá fiskinn vaka þarna út um allt, Og urðum einnig varir við hann í massavís þarna í kantinum.. Fékk 2 fiska um 2 pund. En misti þó annan þeirra :)

Bjarni | 27. jún. 2010 kl: 04:17

Ok, það var akkurat þetta sem ég vildi fá að vita.

Sigfús | 13. ágú. 2009 kl: 12:03

makríll er ekki löglegur á öllu vatnasviði Þingvallavatns sorry en svona er þetta við þurfum stundum að gjalda fyrir sóðaskap annara. Menn voru að skylja þetta eftir á bökkunum og þetta dró að varginn og var orðið svoldið subbulegt , svo vildu þeir meina að þetta væri að útríma urriðastofninum í vatninu ( bullshit). enn svona er þetta við förum bara eftir reglunum einsog góðum veiðimönnum sæmir.

Gísli | 12. ágú. 2009 kl: 05:29

Góðan daginn. Ég er bara að spá í einu, er makríll ekki flokkaður sem löglegt agn? má ekki veiða á makríl í Úlffljótsvatni? Vil bara vera viss.

Sigfús | 09. ágú. 2009 kl: 04:45

Skrapp í gær (föstudag) og fékk 8 Bleikjur. Frekar smáar, allar um 300 - 400 grömm. Reyndi fyrst spoona og flugur en ekkert gekk, skipti þá yfir í maðk og þá fóru hlutirnir að gerast. Tek undir með þeim sem hafa tjáð sig hér á undan, flugunetið er algjört must þarna núna.

Kjartan Jónsson | 01. ágú. 2009 kl: 08:52

Fór þarna á sunnudag, náði einni c.a. 1punda bleikju á flugu. Talandi um flugur, þá tek ég fyllilega undir með síðustu ræðumönnum. Takið flugnanetið með !

Magnús | 21. júl. 2009 kl: 02:11

Fórum í dag og reyndum 3 staði. Kvíanes, Kirkjan og niðri við Sogið. Urðum ekki varir ...nema við mýið!

Sverrir | 15. júl. 2009 kl: 09:49

passið ykkur á mýinu, forgangsatriði að taka flugnanet

kjartan | 14. júl. 2009 kl: 12:20

Efnisyfirlit

Leitarvél