Vatnasvæði Selár - Ölvesvatn
Staðsetning:
Ölversvatn (vatnasvæði Selár) er á Skagaheiði, í Skefilsstaðahreppi í Skagafirði.
Upplýsingar um vatnasvæðið:
Ölvesvatn er hið langstærsta á vatnasvæði Selár, en einnig má veiða í Fossvatni, Selvatni, Grunnutjörn, Andavatni og Stífluvatni, Eiðsá, Fossá, auk lækja sem renna á milli vatna. Ölvesvatn er um 2,8 km2 að stærð og nokkuð djúpt.Leiðarlýsing og fjarlægð frá Rvk. og næsta bæjarfélagi:
Fjarlægð er um 366 km. frá Reykjavík og 40 km. frá Sauðárkróki. Afleggjarinn frá Hvalnesi er um 6 km. jeppavegur að Ölvesvatni.
Veiðisvæðið:
Veiði er heimil á öllu vatnasvæðinu, þ.e.a.s. Ölvesvatni, Fossvatni, Selvatni, Heyvötnum, Grunnutjörn, Andavatni, Stífluvatni, Eiðsá, Fossá , auk lækja sem renna á milli vatna.
Gisting:
Við Ölvesvatn er hægt að leigja tvö aðstöðuhús með eldunar- og gistiaðstöðu fyrir allt að 6 manns. Þar er kamar. Á bænum Hvalnesi er einnig hægt að leigja aðstöðu á rishæð í húsinu Skagavör. Þar er einnig hægt að elda og leigja svefnpokapláss fyrir allt að 5 manns með aðgangi að snyrtiaðstöðu, sturtu og aðgerðaraðstöðu fyrir afla. Aðstöðuhúsin þarf að panta með fyrirvara hjá Bjarna, Elínu eða umsjónarmanni í Hvalnesi í síma 453-6520 eða GSM: 893-7756.
Veiði:
Á vatnasvæðinu er bæði bleikja og urriði. Mikið er af ½ - 3 punda fiski á vatnasvæðinu, ásamt urriða, sem getur orðið allt að 6-7 pund.
Daglegur veiðitími:
Heimilt er að veiða allan sólarhringinn.
Tímabil:
Veiðitímabilið veltur öllu jöfnu á veðri, en yfirleitt er ekki orðið fært upp að vatni fyrir en seinnihluta maí og stendur veiðitíminn yfirleitt fram í miðjan september, en þá veiðist minna af bleikju.
Agn:
Leyfilegt agn er fluga, maðkur, makríll og spónn. Góð aðstaða er til fluguveiða.
Besti veiðitíminn:
Veiði er nokkuð jöfn yfir daginn.
Reglur:
Aðgengi að veiðisvæðinu er takmarkað og öruggara að panta veiðleyfi fyrirfram til að tryggja sér aðgang. Bókanir með aðstöðuhúsi njóta forgangs, bæði hvað snertir húsin við Ölvesvatn og rishæðina í Skagavör. Handhöfum Veiðikortsins ber að skrá sig í Hvalnesi og fá lykil að svæðinu. Sýna þarf Veiðikortið og skilríki. Netaveiði er stranglega bönnuð svo og meðferð skotvopna. Einnig er stranglega bannað að skilja eftir sig rusl og aka utan vega. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Í Hvalnesi fá veiðimenn veiðiskýrslur til útfyllingar og upplýsingar um svæðið. Veiðiskýrslum og lyklum ber að skila við lok veiða í Hvalnesi.
Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum:
Bjarni Egilsson og fjölskylda á Hvalnesi, S: 453-6520.
/28.2.2011