Frétt

25. okt. 2006

Veiðikortið 2007 - Kleifarvatn og önnur ný vatnasvæði.

Veiðikortið 2007 – Kleifarvatn á Reykjanesi

 

Skrifað hefur verið undir samning við Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar, til þriggja ára um að Kleifarvatn á Reykjanesi verði innan vébanda Veiðikortsins.  Það er mikið ánægjuefni að fá Kleifarvatn inn þar sem það er eitt af þeim vötnum við höfuðborgarsvæðið sem hafa verið hvað vinsælust í gegnum tíðina.  Það er í aðeins 34 km fjarlægð frá Reykjavík þannig að stutt er að fara og aðgengilegt fyrir alla fjölskylduna.

Kleifarvatn er frægt fyrir stórfiska og mælingar sýna mikið af fiski í vatninu, einnig hafa kafarar séð mikið af vænum fiski þar. Vatnið virðist því greinilega vera að rétta úr kútnum eftir nokkurra ára lægð.

Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar hefur hafið ræktunarátak í vatninu og 2006  var sleppt um 10.000 ársgömlum urriðaseiðum í vatnið. Sleppingum verður haldið áfram næstu ár auk þess sem slóðar í kringum vatnið verið lagfærðir. 

 

Veiðikortið er að hefja sitt þriðja starfsár.  Allt frá fyrsta degi hefur Veiðikortinu verið mjög vel tekið og þessum frábærum viðtökum má þakka það að hægt hefur verið að auka framboðið af vötnum innan kortsins með reglulegu millibili.  Einnig er það ánægjuefni að geta boðið Veiðikortið á sama verði og síðastliðin ár sem er kr. 5.000.-  Kortið gildir fyrir einn fullorðinn og börn yngri en 14 ára í fylgd með korthafa.  Hægt er að kaupa Veiðikortið 2007 á www.veidikortid.is, á næstu ESSO stöð eða í betri veiðivöruverslunum um land allt. 

 

 

Með Veiðikortinu fylgir vegleg handbók þar sem vötnin eru ítarlega kynnt til að auðvelda aðgengið að þeim, sem og kynna fyrir korthöfum þær reglur sem gilda um hvert vatnasvæði.  Einnig eru í handbókinni kort og myndir frá vatnasvæðunum sem í boði eru.

 

Enn er mögulegt að fleiri vötn bætist við fyrir vorið en allar fréttir af nýjum vatnasvæðum og aðrar fréttir verða  birtar á heimasíðu Veiðikortsins, www.veidikortid.is. 

 

Veiðikortið 2007 kemur út í lok nóvember þannig að hægt verður að setja kortið á jólagjafalistann en það hentar einnig til tækifærisgjafa og í afmælisgjafir til áhugasamra stangaveiðimanna.

 

Í fyrra bættust við vötn eins og Þingvallavatn fyrir landi þjóðgarðsins, Hraunsfjarðarvatn og Ljósavatn fyrir norðan. 

 

Ný vatnasvæði 2007

 

Kleifarvatn – á Reykjanesi:

Skemmtilegt vatn í næsta nágrenni höfuðborgarsvæðisins.    

 

Vatnasvæði Selár – Ölvesvatn:

Undir vatnasvæði Selár heyra Ölvesvatn, Fossvatn, Grunnatjörn, Stífluvatn, Andavatn, Heyvötn og Selvatn auk lækja sem renna á milli vatnanna.

 

Svínavatn í A-Húnavatnssýslu:

Svínavatn er kærkomin viðbót enda er þægilegt að staldra þar við séu menn á norðurleið.  Leyfilegt er að veiða í landi Mosfells, Reykja, Orrastaða og Stóra-Búrfells, ásamt öllum almenningi vatnsins utan 115 metra frá landi. Gott er að vera með báta á vatninu.

 

Melrakkaslétta:

Á Melrakkasléttu er Veiðikortið búið að semja um þrjú vatnasvæði fyrir korthafakortsins. Þau vötn, sem um ræðir, eru Hraunhafnarvatn, Æðarvatn og Arnarvatn í landi Skinnalóns. 

 

Mjóavatn og Kleifarvatn í Breiðdal:

Skemmtileg vötn nálægt þjóðvegi 1.  Góð viðbót við veiðimöguleika fyrir austan. Urriði er í vötnunum.

 

Haugatjarnir:

Skemmtilegar veiðitjarnir sem eru við bæinn Hauga í Skriðdal við þjóðveg 1. Tjarnirnar eru mikið sóttar. Í þeim er mikið af fiski þótt hann sé í smærri kantinum.  Gott að staldra þar við með fjölskyldunni og leyfa börnunum veiða.

 

Langavatn á Skaga, Torfdalsvatn á Skaga og Sandvatn verða ekki innan Veiðikortsins 2007.

 

Veiðisvæðin í Veiðikortinu 2007.

 

1.            Arnarvatn á Melrakkasléttu (í landi Skinnalóns)

2.            Baulárvallavatn á Snæfellsnesi

3.            Haugatjarnir í Skriðdal

4.            Haukadalsvatn í Haukadal (í landi Vatns)

5.            Hítarvatn á Mýrum

6.            Hraunhafnarvatn á Melrakkasléttu (í landi Skinnalóns)

7.            Hraunsfjarðarvatn á Snæfellsnesi

8.            Hraunsfjörður á Snæfellsnesi

9.            Kleifarvatn í Breiðdal

10.        Kleifarvatn í landi Hafnarfjarðar

11.        Kringluvatn í Suður-Þingeyjarsýslu

12.        Langavatn í Borgarbyggð

13.        Ljósavatn í Suður-Þingeyjarsýslu

14.        Mjóavatn í Breiðdal

15.        Skorradalsvatn í Skorradal (í landi Indriðastaða)

16.        Sléttuhlíðarvatn í Skagafirði (í landi Hrauns)

17.        Svínavatn í Húnavatnssýslu

18.        Syðradalsvatn við Bolungavík

19.        Sænautavatn á Jökuldalsheiði

20.        Urriðavatn við Egilsstaði

21.        Úlfljótsvatn (í landi Efri-Brúar)

22.        Vatnasvæði Selár - Ölvesvatn

23.        Vatnsdalsvatn í Vatnsfirði

24.        Vífilsstaðavatn í Garðabæ

25.        Víkurflóð við Kirkjubæjarklaustur

26.        Þingvallavatn (fyrir landi þjóðgarðsins)

27.        Þórisstaðavatn í Svínadal

28.        Þveit í Hornafirði (fyrir landi Stórulágar)

29.        Æðarvatn á Melrakkasléttu (í landi Skinnalóns)

 

Með bestu kveðju,

Veiðikortið




Efnisyfirlit

Leitarvél