Frétt

19. sep. 2007

Syðridalsvatn

Minna hefur verið af bleikju nú í sumar og kom hún seinna en venjulega.  Eitthvað af laxi hefur gengið í vatnið og er búið að veiða um 5-6 laxa.  Seinni hluti sumars er búinn að gefa ágætis bleikjuveiði.

Við hvetjum veiðimenn sem hafa farið í vötnin í sumar að senda okkur fregnir af aflatölum og jafnvel veiðisögum á netfangið veidikortid@veidikortid.is  Einnig eru myndir af veiðitúrum í vötnin vel þegin í myndasafnið.

Einnig minnum við á Veiðiskýrslu sem hægt er að sækja hér eða neðst til vinstri af forsíðu.

Með kveðju,

Veiðikortið




Efnisyfirlit

Leitarvél