01. apr. 2009
Vötnin opna í dag!
Nú er sjálfsagt kominn spenningur í veiðimenn þar sem sólin er farin að hækka og fyrstu veiðivötnin opna í dag 1. apríl. Lóan og opnun þessara fyrstu vatna eiga það sameiginlegt að vera hvort tveggja ljúfir vorboðar. Veðrið er reyndar ekki eins og eftir pöntun, en hitastigið þó réttum megin við núllið. Vötnin í nágrenni höfuðborgarsvæðisins ættu að vera orðin íslaus að mestu.
Vötnin sem opna í dag eru:
Vífilsstaðavatn
Þórisstaðavatn
Hraunsfjörður
Meðalfellsvatn
Syðridalsvatn
Þveit
Víkurflóð (þegar ísa leysir)
Baulárvallavatn (þegar ísa leysir)
Hraunsfjarðarvatn (þegar ísa leysir)
Hópið (þegar ísa leysir)
Kringluvatn (þegar ísa leysir)
Urriðavatn (þegar ísa leysir)
Veiðikortið vonast til að heyra sem mest frá veiðimönnum í sumar og ánægjulegt væri að fá sendar myndir og veiðisögur frá deginum.
Hér koma nokkrar myndir frá 1. apríl 2007:
Vífilsstaðvatn 1. apríl 2007
Vífilsstaðavatn 1. apríl 2007
Við Meðalfellsvatn í apríl 2008 en þar veiddist þá talsvert af sjóbirtingi.
Bestu kveðjur,
Veiðikortið