Frétt

23. júl. 2009

Stórurriði veiddist á Svartan Nobbler á Þingvöllum 11. júlí

Þann 11. júlí síðastliðinn fékk Kristófer Ásgeirsson glæsilegan urriðahæng á Svartan Nobble á Þingvöllum.  Fiskurinn 84 cm og vó rúmlega 12 pund. 

Það er sérstaklega gaman að heyra fréttir að því þegar menn fá slíka fiska á fluguna en flestir stórurriðarnir sem veiðst hafa í sumar hafa verið veiddir á beitu. 

Hér má sjá myndir af þessum stórglæsilega stórurriða sem Kristófer fékk 11. júlí á fluguna:


Glæsilegur fiskur!

Við þökkum Kristóferi fyrir að deila þessum myndum með okkur.

Með kveðju,

Veiðikortið




Efnisyfirlit

Leitarvél