Frétt

22. okt. 2005

Veiðikortið 2006

Veiðikortið 2006 er í fullri vinnslu og er það væntanlegt í lok nóvember þannig að allir ættu að geta sett Veiðikortið 2006 á jólagjafalistann.

Þrjú ný vatnasvæði hafa bæst við vatnaflóruna sem var í boði fyrir sl. sumar.  Þau vötn eru Þingvallavatn fyrir landi Þjóðgarðsins, Hraunsfjörður og einnig er búið að semja um Ljósavatn, en frá Akureyri er um 30 mínútna akstur að Ljósavatni sem er í Ljósavatnsskarði austan Eyjafjarðar.

Með þökk fyrir frábærar viðtökur sl. sumar.

Með kveðju,

Veiðikortið ehf.




Efnisyfirlit

Leitarvél