Frétt

30. ágú. 2011

Hlíðarvatn í Selvogi - Opið hús sunnudaginn 4. september

OPIÐ HÚS Í HLÍÐARVATNI Í SELVOGI  !

Sunnudaginn 4. September n.k. býðst  lítið og óvönum veiðimönnum að koma í  Hlíðarvatn í Selvogi og renna  fyrir silung í boði veiðiréttarhafa.  Á staðnum verða vanir veiðimenn frá  stangaveiðifélögunum við vatnið sem gefa munu góð ráð og tilsögn.

Hlíðarvatn er ákaflega gjöfult bleikjuvatn i aðeins 45 mín. fjarlægð frá Hafnarfirði, ekið sem leið liggur fram hjá Kleifarvatni til Krýsuvíkur og svo austur á bóginn í átt til Þorlákshafnar. Bleikjan í Hlíðarvatni er annálaður matfiskur en einungis má veiða á spún eða flugu, beita er  bönnuð.

Ungir veiðimenn sérstaklega velkomnir og foreldrarnir að sjálfsögðu með.

 

Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar, Ármenn og Stangaveiðifélag Selfoss selja t.d. leyfi í vatnið og hægt er að kynna sér vatnið betur á heimasíðum þeirra.

 


Sjóbleikjur úr Hlíðarvatni

 

Með veiðikveðju,

Veiðikortið

 




Efnisyfirlit

Leitarvél