Eyrarvatn í Svínadal

Eyrarvatn í Svínadal

Staðsetning:

Á Þórisstöðum í Svínadal í Hvalfjarðarsveit er boðið upp á veiði í þremur stöðuvötnum.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Rvk. og næsta bæjarfélagi.

Frá Reykjavík eru 82 km., sé farið um Hvalfjarðargöng og frá Akranesi eru um 27 km.  Fyrir þá sem búa á höfuðborgarsvæðinu er alveg tilvalið að fara leiðina um Hvalfjörð, en hún tekur u.þ.b. 15 mín. aukalega. 

Upplýsingar um vötnin:

Vötnin eru Geitabergsvatn, Þórisstaðavatn og Eyrarvatn. Þau er öll hluti af vatnasvæði Laxár í Leirársveit. Lax gengur í vötnin og silungur er þar staðbundinn, bæði bleikja og urriði.  Þórisstaðavatn er þeirra stærst, 1,37 km2 að stærð og liggur 71 m. hæð yfir sjávarmáli.  Mesta dýpt vatnsins er um 24 m. 

Veiðisvæðið: 

Allt Geitabergsvatn, allt Þórisstaðavatn og norðanvert Eyrarvatn.

Gisting:

Á svæðinu er skipulagt tjaldsvæði með snyrtiaðstöðu. Næsta gistiþjónusta er að Tungu í Svínadal og á Hótel Glym.

Veiði: 

Mest veiðist af urriða í vötnunum, en einnig bleikju. Lax veiðist stöku sinnum. Silungar geta orðið mjög vænir.

Daglegur veiðitími:

Leyfilegt er að veiða frá kl. 7 til kl. 22.  Aðeins má veiða til kl. 21 eftir 20. ágúst.

Tímabil:

Veiðitímabil stendur yfir frá 1. apríl til 25. september.

Agn:

Allt löglegt agn er leyfilegt: Fluga, maðkur og spónn.

Besti veiðitíminn:

Nokkuð jöfn veiði yfir veiðitímabilið. 

Annað: 

Þórisstaðir eru í eigu Stjá (Starfsmannafélags Íslenska Járnblendifélagsins), en eru í útleigu til einkaaðila, sjá nánar á www.thorisstadir.is
Mjög gott aðgengi er að vötnunum og henta þau því mjög vel fyrir fjölskyldufólk og fatlaða.  Í næsta nágrenni má finna golfvöll, hótel, sveitakrá, hestaleigu, sundlaug og sölubúð. 

Reglur: 

Veiðileyfi í vötnunum gilda ekki í ánum, Þverá og Selós. Öll umferð um árnar er stranglega bönnuð og eru þær vel merktar.  Korthafar eiga að skrá sig á Þórisstöðum og sýna þar Veiðikortið og persónuskilríki.  Veiðimenn eru beðnir um að skilja ekki eftir sig rusl og akstur utan vega er stranglega bannaður.  Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.

Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum:

Elís - sími: 895-8114
Jenny - sími: 848-3733
Netfang: thorisstadir@thorisstadir.is
Heimasíða: www.thorisstadir.is

 Nálgast rafræna veiðiskýrslu Fáðu þér veiðikortið

Myndir

Benjamin með urriða úr Eyrarvatni júlí 2011

Skilaboðaskjóðan

Segðu þína skoðun

Var einhver þarna?

Bisk | 26. jún. 2011 kl: 12:37

Efnisyfirlit

Leitarvél