Geitabergsvatn í Svínadal

Geitabergsvatn í Svínadal

Staðsetning:

Á Þórisstöðum í Svínadal í Hvalfjarðarsveit er boðið upp á veiði í þremur stöðuvötnum.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Rvk. og næsta bæjarfélagi.

Frá Reykjavík eru 82 km., sé farið um Hvalfjarðargöng og frá Akranesi eru um 27 km.  Fyrir þá sem búa á höfuðborgarsvæðinu er alveg tilvalið að fara leiðina um Hvalfjörð, en hún tekur u.þ.b. 15 mín. aukalega. 

Upplýsingar um vötnin:

Vötnin eru Geitabergsvatn, Þórisstaðavatn og Eyrarvatn. Þau er öll hluti af vatnasvæði Laxár í Leirársveit. Lax gengur í vötnin og silungur er þar staðbundinn, bæði bleikja og urriði.  Þórisstaðavatn er þeirra stærst, 1,37 km2 að stærð og liggur 71 m. hæð yfir sjávarmáli.  Mesta dýpt vatnsins er um 24 m. 

Veiðisvæðið: 

Allt Geitabergsvatn, allt Þórisstaðavatn og norðanvert Eyrarvatn.

Gisting:

Á svæðinu er skipulagt tjaldsvæði með snyrtiaðstöðu. Einnig er hægt að fá leigt veiðihús sem liggur við Þórisstaðavatn.  Næsta gistiþjónusta er sumarhúsum að Hlíð og Bjarteyjarsandi.  Einnig er hægt að fá lúxusgistingu á Hótel Glym.

Veiði: 

Mest veiðist af urriða í vötnunum, en einnig bleikju. Lax veiðist stöku sinnum. Silungar geta orðið mjög vænir.

Daglegur veiðitími:

Leyfilegt er að veiða frá kl. 7 til kl. 23.30.  Aðeins má veiða til kl. 21 eftir 20. ágúst.

Tímabil:

Veiðitímabil stendur yfir frá 1. apríl til 25. september.

Agn:

Allt löglegt agn er leyfilegt: Fluga, maðkur og spónn.

Besti veiðitíminn:

Nokkuð jöfn veiði yfir veiðitímabilið. 

Annað: 

Mjög gott aðgengi er að vötnunum og henta þau því mjög vel fyrir fjölskyldufólk og fatlaða.  Á Þórisstöðum má einnig finna golfvöll, tjaldstæði, Súpuskála og húsdýragarð.  Sjá nánar á www.thorisstadir.is
Í næsta nágrenni má finna hótel, sveitakrá, hestaleigu, sundlaug og verslun. 

Reglur: 

Veiðileyfi í vötnunum gilda ekki í ánum, Þverá og Selós. Öll umferð um árnar er stranglega bönnuð og eru þær vel merktar.  Korthafar eiga að skrá sig á Þórisstöðum og sýna þar Veiðikortið og persónuskilríki.  Veiðimenn eru beðnir um að skilja ekki eftir sig rusl og akstur utan vega er stranglega bannaður.  Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.

Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum:

Björn og Helena S: 433-8975 og GSM: 691-8975
Netfang: thorisstadir@thorisstadir.is
Heimasíða: www.thorisstadir.is

 Nálgast rafræna veiðiskýrslu Fáðu þér veiðikortið

Myndir

Skilaboðaskjóðan

Segðu þína skoðun

Skilabod Hefur ekkert verið að veiðast í Geitabergsvatni og hvað með beitu?

Nafn Hildur María | 20. ágú. 2012 kl: 05:02

Efnisyfirlit

Leitarvél