Um Veiðikortið
Veiðikortið er að hefja sitt áttunda starfsár. Allt frá fyrsta degi hefur Veiðikortinu verið mjög vel tekið og þessum frábærum viðtökum má þakka það að hægt hefur verið að auka framboðið jafnt og þétt.
Veiðikortið er mjög hagkvæmur valkostur sem hentar jafnt veiðimönnum sem fjölskyldufólki. Með Veiðikortið í vasanum er hægt að veiða nær ótakmarkað í rúmlega 37 veiðivötnum víðsvegar um landið sem og tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra.
Nú gefst fólki loksins kostur á að stoppa við falleg vötn, í skemmri eða lengri tíma, án þess að þurfa að eyða miklum tíma í að finna út hvert á að fara til að kaupa veiðileyfi, eða hvort það sé fiskur í vatninu og þar fram eftir götum.
Með kortinu fylgir veglegur bæklingur og í honum eru lýsingar á veiðisvæðunum, reglur, kort og myndir. Einnig eru grunnupplýsingar á ensku í bæklingnum. Allur texti í bæklingi má finna á www.veidikortid.is bæði á íslensku og ensku.
Við viljum hvetja þig til að nota vefinn www.veidikortid.is bæði til skoðanaskipta og til að lesa nýjustu fréttirnar hverju sinni sem tengjast Veiðikortinu. Einnig er gagnlegt og gaman fyrir notendur Veiðikortsins að deila upplýsingum á spjallinu sem er inni á vefnum. Einnig eru veiðisögur og myndir vel þegnar. Netfang Veiðikortsins er veidikortid@veidikortid.is
Ný vatnasvæði fyrir sumarið 2012 eru oft nefnd Sólheimavötn en þau eru:
Hólmavatn á Hólmavatnsheiði.
Laxárvatn á Laxárdalsheiði.
Almennar reglur
Veiðikortið er stílað á einn einstakling og þurfa korthafar að merkja kortið með kennitölu sinni í þar til gerðan reit. Þegar skráning fer fram hjá landeiganda eða veiðiverði ber að sýna Veiðikortið og persónuskilríki eða samkvæmt reglum í bæklingi. Veiðimenn hvattir til að ganga vel um veiðisvæðin og skilja ekki eftir sig rusl eða önnur ummerki.
Kortið gildir fyrir einn fullorðinn og börn yngri en 14 ára í fylgd með korthafa. Eiganda kortsins ber að merkja kortið á bakhlið með kennitölu sinni.
Veiðimönnum ber að virða þær reglur sem kynntar eru á upplýsingasíðum vatnanna, en mismunandi reglur geta gilt á milli vatnasvæðanna.
Hægt er að kaupa Veiðikortið 2012 á næstu N1-stöð, Olís stöðvum,Íslandspósti og veiðivöruverslunum um land allt og víðar. Einnig er rétt að benda á að hægt er að kaupa Veiðikortið niðurgreitt hjá mörgum stéttarfélögum.
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
Vatnasvæðin sem í boði verða í Veiðikortinu 2012 eru:
1
Arnarvatn á Melrakkasléttu
2
Baulárvallavatn á Snæfellsnesi
3
Eyrarvatn í Svínadal
4
Geitabergsvatn í Svínadal
5
Haugatjarnir í Skriðdal
6
Haukadalsvatn í Haukadal
7
Hítarvatn á Mýrum
8
Hólmavatn í Dölum
9
Hópið í Húnavatnssýslu
10
Hraunhafnarvatn á Melrakkasléttu
11
Hraunsfjarðarvatn á Snæfellsnesi
12
Hraunsfjörður á Snæfellsnesi
13
Kleifarvatn á Reykjanesskaga
14
Kleifarvatn í Breiðdal
15
Kringluvatn í Suður-Þingeyjarsýslu
16
Langavatn í Borgarbyggð
17
Laxárvatn í Dölum
18
Ljósavatn í Suður-Þingeyjarsýslu
19
Meðalfellsvatn í Kjós
20
Mjóavatn í Breiðdal
21
Sauðlauksdalsvatn við Patreksfjörð
22
Skriðuvatn í Suðurdal
23
Sléttuhlíðarvatn í Skagafirði
24
Svínavatn í Húnavatnssýslu
25
Syðridalsvatn við Bolungavík
26
Sænautavatn á Jökuldalsheiði
27
Urriðavatn við Egilsstaði
28
Úlfljótsvatn - Vesturbakkinn
29
Vatnsdalsvatn í Vatnsfirði
30
Vífilsstaðavatn í Garðabæ
31
Víkurflóð við Kirkjubæjarklaustur
32
Þingvallavatn - þjóðgarður
33
Þingvallavatn - fyrir landi Ölfusvatns
34
Þórisstaðavatn í Svínadal
35
Þveit við Hornafjörð
36
Æðarvatn á Melrakkasléttu
37
Ölvesvatn - Vatnasvæði Selár