Dagbókarfærsla

09. jún. 2006

Hítarvatn


við félagarnir erum að spá í að fara í Hítarvatn í vikunni, eru einhverjir sem eru búnir að fara og var eitthvað að hafa?
til baka

Segðu þína skoðun

ágætt að hafa í hrauninu við Foxufellið

Gee | 09. jún. 2006 kl: 04:39

Var að koma úr Hítarvatni. Búið að vera mikið rok og rigning síðustu daga, en við létum okkur hafa það að veiða í einhverja klukkutíma. Höfðum þó tvær bleikjur upp úr krafsinu.
Leigðum skálann hjá Finnboga bónda á Hítarvatni sem var kærkominn þar sem við höfðum hugsað okkur að tjalda. Þetta er mjög þægilegur skáli sem ég mæli með að veiðimenn kynni sér varðandi útleigu.

Með kveðju,
Ingimundur

Ingimundur | 15. jún. 2006 kl: 08:00

Ég var í Hítarvatni helgina 21. - 23. júlí.
Við vorum 3 og vorum austan meginn við Hólm. Við fengum samtals 56 fiska. Þetta voru allt urriðar og voru frá rúmlega hálfu pundi og upp í rúmlega 2 pund. Þetta var mest á makríl en líka á maðk. Flugan var ekki mikið að virka. Bæði í hrauninu og við klettana. Það voru þó nokkuð margir þarna og allir að fá fiska.

Kveðja
Ingi Már

Ingi Már | 04. ágú. 2006 kl: 06:33


Efnisyfirlit

Leitarvél