27. júl. 2006
Sléttuhlíðavatn
Hefur einhver veitt í þessu vatni?Erum að fara norður og ætlum að heimsækja nokkur vötn. Með hvaða vötnum mælið þið á norðurlandi?Kveðja Gústa
til baka
Sæl Gústa,
Ég hef töluvert veitt í Sléttuhlíðarvatni. Það hefur alltaf gefið mér ágæta veiði þráttir fyrir að ég hafi alltaf stoppað frekar stutt. Mæli með tanga ca. fyrir miðju vatninu þar sem lækur rennur út í það. Einnig veiðist mikið í víkinni við veiðihúsið. Einnig getur verið ágætt að hringja og spjalla við Magnús á Hrauni varðandi hvernig veiðin hefur verið að ganga síðustu daga. Ég mun allaveganna veiða þarna um verslunarmannahelgina. Urriðinn er fínn í vatninu og hugsanlega er komið slatti af sjóbleikju - en þar er einnig staðbundin bleikja.
Með kveðju,
Ingimundur
Ég veit að það er mokveiði þarna í júní og júlí örugglega enn þegar ég kom þarna helgina eftir verslunarmannahelgi sá ég ekkert vaka þótt það væri allveg logn nema þegar ég rölti með læknum sem er þarna þá var hann gjörsamlega pakkaður af smárri sjóbleikju.
. | 27. júl. 2006 kl: 08:03Mætti þarna 21 júl.
Þar var fyrir góðkunningi bóndans með 12 net, og hvarf að lokum á braut með yfir 200 silunga.
Ekki veiddi ég neitt.
Sléttuhlíðarvatn er perla sem menn ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Mjög gott að vera þarna með börn og kynna þeim silungsveiði. Ég veiði þarna nær eingöngu á flugu og kem yfirleitt snemma sumars, nokkrum sinnum. Gaman og krefjandi að veiða lækinn úr vatninu á nettar græjur. Gott að koma við og þiggja góð ráð hjá Magga og Ellu.
Jón Tryggvi Jökulsson | 16. sep. 2008 kl: 07:56