Hópið í Húnavatnssýslu

Hópið í Húnavatnssýslu

Staðsetning:

Hópið er á mörkum Austur- og Vestur- Húnavatnssýslna.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi:

Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 235 km og  að norðan 25 km frá Blönduósi. Þegar komið er að sunnan  er ekið 12 km lengra en afleggarinn á Hvammstangavegamótum og beygt til vinstri þegar komið er að afleggjera sem á stendur Vatnsnes vegur nr. 711 . Einnig er hægt að keyra framhjá Víðigerði og beygja inn afleggjarann inn að Borgarvirki sem er vegur nr. 716.  Einnig er hægt að veiða Þingeyramegin og er þá ekið í beygt af þjóðvegi nr. 1 hjá Sveinstöðum í átt að Þingeyrakirkju.

Upplýsingar um vatnið:

Hópið er fimmta stærsta stöðuvatn landsins. Þingeyrarsandur skilur Hópið frá hafi. Vatnið er um 29 km2. til 44 km2 að flatarmáli eftirsjávarföllum.Veiði er heimil í öllu vatninu. Vinsælustu veiðisvæðin eru við Ásbjarnarnes, Skollanes og út með Myrkubjörgum. Austanmegin við vatnið er gott að veiða Refsteinsstaði og Gljúfurá en bannað er að veiða í ósum. Einnig veiðist vel á söndunum Þingeyramegin. Fyrst á vorin ber að varast að aurbleyta getur verið í slóðum og er þá frekar mælt með því að menn gangi síðustu metrana inn að vatni. Heimilt er að tjalda við vatnið á eigin ábyrgð en engin hreinlætisaðstaða er á svæðinu. Hægt er að kaupa gistingu á Hótel Borgarvirki og Víðigerði. Einnig er notalegt að gista í smáhýsum á Dæli. Þangað er u.þ.b. 30 mínútna akstur.Staðbundin bleikja, sjóbleikja, sjóbirtingur og töluvert af laxi veiðist ár hvert í Hópinu enda gengur mikið af laxi í gegnum Hópið í  Víðidalsá og Gljúfurá. Sjóbleikjan getur verið væn enda sami stofninn og veiðist í Víðidalsá. Einnig veiðist mikið af fallegum sjóbirtingi í vatninu.

Daglegur veiðitími:


12 klukkustundir á dag en veiðitíminn er frjáls.Veiði er heimil frá því ísa leysir til 15. september. Fluga, maðkur og spónn.

Besti veiðitíminn:

Veiðin er nokkuð jöfn yfir árið en oft veiðist best í maí og fram í miðjan júlí. Einnig er fínt að veiða sjóbirtinginn í ágúst og fram í september.Hægt er að skoða myndir á vef Veiðikortsins.

Annað:

Gaman er að skoða Borgarvirki og Hvítserk, sem er skammt frá Hópinu eða fara á selaslóðir um Vatnsnes. Að austan eru Þingeyrakirkja og Þrístapar áhugaverðir sögustaðir.

Reglur:

Vinsamlegast skiljið ekki eftir rusl og stranglega bannað er að aka utan vega. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Veiðimenn fara beint inn að vatni og hafi Veiðikortið við höndina þegar veiðivörður vitjar veiðimanna. Veiðimönnum ber að skila veiðiskýrslum á netinu, www.veidikortid.is eða skrá veiði í veiðibók sem staðsett verður í kassa við afleggjann að Ásbjarnarnesi.

Nálgast rafræna veiðiskýrslu Fáðu þér veiðikortið

Myndir

Sergie 23.5.2010
Ólafur Sigfús Benediktsson, 13. maí 2010
Brynjar Ingólfsson með glæsilegan sjóbirting frá 10.7 2010

Skilaboðaskjóðan

Segðu þína skoðun

Hvar hafa menn helst veriða að veið fyrir Austan ? Góðir fiskar í og í hvernig veðri ?

Togarinn | 02. júl. 2011 kl: 12:20

Mjög mikið er af kvikasilfri í urriða í Baulárvallavatni og Hraunsfjarðarvatni. Mikilvægt er að konur á barneignaldri borði ekki mikið af fiski úr þessum vötnum af heilsufarsástæðum.

Upplýsingar | 27. jún. 2011 kl: 12:59

Ma vera með bat a hopinu

Gudjon | 15. jún. 2010 kl: 07:22

Skilabod

Nafn | 28. apr. 2010 kl: 10:32

Hefur eithvað verið að veiðast undanfarið?

Ingvar | 15. sep. 2009 kl: 09:07

Efnisyfirlit

Leitarvél