Víkurflóð við Kirkjubæjarklaustur
Staðsetning:
Víkurflóð er í rétt sunnan við Kirkjubæjarklaustur við þjóðveg 204.
Upplýsingar um vatnið:
Vatnið er um 12 ha. að stærð og um þriggja metra djúpt. Þegar líður á sumarið vex gróðurhringur upp úr vatninu sem getur gert spúnaveiði erfitt fyrir.
Leiðarlýsing og fjarlægð frá Rvk. og næsta bæjarfélagi.
Fjarlægð er um 260 km. frá Reykjavík og 4 km. suður af Kirkjubæjarklaustri.
Veiðisvæðið:
Veiði er heimil í öllu vatninu.
Gisting:
Hægt er að leigja smáhýsi og hótelgistingu á staðnum. Veitingaþjónusta er á Efri Vík en auk þess er 7 mínútna akstur er á Kirkjubæjarklaustur, en þar er að finna verslun, þjónustu og tjaldstæði.
Veiði:
Í vatninu er bæði sjóbirtingar og bleikjur sem ganga upp Skaftá og þaðan um læk inn í Víkurflóð. Auk þess er staðbundinn bleikja og urriði í vatninu. Stærð fiska er allt frá smáfiski upp í 5-6 punda fiska. Sjóbirtingur finnst víðast hvar, einnig í sefinu sunnanmegin í vatninu.
Daglegur veiðitími:
Heimilt er að veiða allan sólarhringinn.
Tímabil:
Veiði er leyfð allt árið um kring.
Agn:
Allt löglegt agn er leyfilegt: Fluga, maðkur og spónn. Góð aðstaða er til fluguveiða.
Besti veiðitíminn:
Yfirleitt gefur best árla eða seinnipart dags.
Annað:
Á Efri Vík er glæsilegur 9 holu golfvöllur þannig að hægt er að slá tvær flugur í einu höggi og fara í veiði og golf í sömu ferðinni. Sjá www.efrivik.is
Reglur:
Handhöfum Veiðikortsins ber að skrá sig í Efri Vík. Sýna þarf Veiðikortið og skilríki. Það er stranglega bannað að skilja eftir sig rusl og aka utan vega. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.
Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum:
Hörður Davíðsson, Efri-Vík, s: 487-4694