Þingvallavatn - Þjóðgarðurinn

Þingvallavatn - Þjóðgarðurinn

Staðsetning: 

Þingvallavatn er í Þingvallasveit í Bláskógabyggð.  

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi. 

Vatnið er í um 50 km. fjarlægð frá Reykjavík. 

Upplýsingar um vatnið:

Þingvallavatn er í um 100 m. hæð yfir sjávarmáli og mælist um 84 km2 að flatarmáli.  Mesta dýpi er um 114 m.   Vatnið er eitt vinsælasta veiðivatn á landinu og á sér stóran hóp af fastagestum.  Náttúrufegurð og saga gerir Þingvallavatn  einstakt meðal vatna landsins.  Mikið er að djúpum gjám í vatninu.  Búið er að setja upp mjög góða aðstöðu fyrir veiðimenn og tjaldgesti við Vatnskot. Þar eru  smáhýsi með snyrti- og eldunaraðstöðu og upplýsingum um vatnið  og lífríki þess. Fyrir veiðitímabilið 2006 verður komin upp veiðiaðstaða fyrir hreyfihamlaða til að auðvelda aðgengi að svæðinu. 

Veiðisvæðið: 

Handhöfum Veiðikortsins er heimilt að veiða fyrir landi þjóðgarðsins frá Arnarfelli að Öxarárósi gegnt Valhöll. Öll veiði í Öxará er bönnuð.   Hægt er að fá kort yfir veiðisvæðið um leið og veiðimenn skrá sig í þjónustumiðstöð.    Helstu veiðistaðir eru í Lambhaga, Vatnskoti, Vörðuvík, Öfugsnáða, Lambhaga  Nautatanga og Hallvík. Veiðibann er í Ólafsdrætti frá 1. júlí til 31. ágúst vegna hrygningar bleikjunnar.

Gisting:


Tjaldleyfi er hægt að kaupa í þjónustumiðstöðinni.  Einungis er leyfilegt að tjalda á sérmerktum tjaldstæðum.  Óheimilt er að nota tjaldvagna eða fellihýsi á tjaldstæðinu í Vatnskoti.

Veiði: 

Í vatninu eru 4 tegundir af bleikju sem og víðfrægur urriðastofn.  Algeng stærð á bleikjunni er frá hálfu pundi upp í 3 pund.  Bleikjutegundirnar eru: Kuðungableikja, sílableikja, murta og gjámurta.  Bleikjuafbrigðin hafa þróast í vatninu á síðustu 10.000 árum. 

Daglegur veiðitími: 

Veiðitími er frjáls. 

Tímabil:

Veiðitímabilið hefst 1. maí og því lýkur 15. september.  Veiðibann er í Ólafsdrætti frá 1. júlí til 31. ágúst vegna hrygningar bleikjunnar.

Agn: 

Eingöngu leyfð veiði á flugu, maðk og spón.  Nefna má margar góðar flugur, en mest veiðist á litlar silungapúpur eins og t.d. Peacock, Watson Fancy, svartan Killer svo einhverjar séu nefndar.  Oft reynist vel að nota langan taum og draga mjög hægt sérstaklega þar sem mikið dýpi er. 

Besti veiðitíminn: 

Jöfn veiði er í vatninu.  Mjög góð bleikjuveiði er í maí, júní og júlí.  Bestu líkurnar til að veiða urriða eru seint á kvöldin.

Reglur: 

Veiðimenn og útivistarfólk eru vinsamlegast beðið að ganga vel um svæðið og skilja ekki eftir sig rusl.  Óheimilt er að aka utan vega.  Korthafar eiga að skrá sig í þjónustumiðstöð eða hjá landverði í Vatnskoti.  Þingvallanefnd áskilur sér þann rétt að takmarka aðgang að vatninu gerist þess þörf.  Veiðikortið gildir aðeins fyrir landi þjóðgarðsins að undanskildu landi Kárastaða.  Vatnið er mjög kalt og eru menn beðnir um að fara að öllu með gát.  Öll veiði úr bátum er bönnuð korthöfum Veiðikortsins.  Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.  Vegna rannsókna á urriða í Þingvallavatni eru veiðimenn beðnir að athuga hvort veiddir urriðar séu mælimerktir.  Merkin eru fest á baki urriðans og geta verið einföld slöngumerki eða rafeindamerki.  Merkjum ber að skila til þjónustumiðstöðvar.

Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum:

Landverðir þjóðgarðsins á Þingvöllum sinna eftirliti og veita upplýsingar.  Hægt er að hafa samband við landverði í þjónustumiðstöð þjóðgarðsins á Leirum en einnig er landvörður staðsettur við vatnið með aðstöðu í Vatnskoti og sinnir eftirliti þaðan.

Hér má einnig finna greinargóða veiðistaðalýsingu á vef Árvíkur í umsjón Sigurðar G. Tómassonar útvarps- og veiðimanns.

Nálgast rafræna veiðiskýrslu Fáðu þér veiðikortið

Myndir

Ásgeir Jónsson 2010
Bernhard Snær Petersen
Kristján með fallega fiska á Þingvöllum
Kristján með fallega fiska á Þingvöllum
Fallegur dagur á Þingvöllum
7 punda bleikja veidd í júní 2007. Veiðimaður Þórhallur Guðmundsson
Konráð Guðmundsson með 17 punda urriða 5. júlí 2012
Benedikt Þorgeirsson, 20. júní 2012.
Birkir Már Harðarson
Kristófer Ásgeirsson með 12,3 punda fisk veiddan á flugu 11. júlí 2009
Kristófer Ásgeirsson með 12,3 punda fisk veiddan á flugu 11. júlí 2009
Binni með 13 punda urriða veiddan 14. maí 2009
Binni með 13 punda urriða veiddan 14. maí 2009
Binni með 13 punda urriða veiddan 14. maí 2009
Davíð Þór Jónsson - 3.5 punda bleikja veidd 1. maí 2009 - 54cm
Rob 17.JÚNÍ 2009
Sigurbjörg Jóhanna með tvær flottar bleikjur 5.júlí 2011
Sigurður Valgeirsson með flottar bleikjur - 12. júní 2012
Sigurður Valgeirsson með flottar bleikjur - 12. júní 2012
Sigurður Valgeirsson með flottar bleikjur - 12. júní 2012
Einar Á.E. Sæmundsen, á þessa mynd
15. maí á Þingvöllum
15. maí á Þingvöllum
15. maí á Þingvöllum
15.maí á Þingvöllum
Hans Van Klinken með glæsilega bleikju
Örn Guðmundsson, Þingvellir 6. maí 2009
9,2 kg urriði - maí 2012 Mikal Wojtas
Lárus 21.júni 2011
Cezary 1. maí 2012
Sten Nilen 1. maí 2012
Michal Wojtas 1. maí 2012
1. maí 2012
Flott bleikja 4-5 pund - Þórir Trausta júní 2011
Halldór Gunnars - maí 2011 3 punda bleikja
Halldór Gunnarsson - 12. júní 2011
Kevin Sevilla maí 2013
Birgir Guðmundsson - 1. maí 2009
Birgir Guðmundsson - 1. maí 2009
Örn Guðmundsson
Örn Guðmundsson, 1. maí 2010
Kristján með fallegan fisk á Þingvöllum
1. maí 2012
19 punda urriði úr Þingvallavatni - Guðmundur Jónasson
19 punda urriði úr Þingvallavatni - Guðmundur Jónasson
Friðleifur I. Friðriksson með 15 punda urriða veiddan 10. maí 2008 á fluguna Black Ghost
Börkur Birgisson með 25 punda urriða.
25 punda urriði og einn minni
Cezary með tvo risa!
Michal með 19 pundara veiddan 3. ágúst 2008
Siggi Boga 1. maí 2010 - 11 punda urriði
Siggi Boga 1. maí 2010 - 11 punda urriði
Rögnvaldur Rögnvaldsson maí 2013
Rögnvaldur Rögnvaldsson maí 2013
Ásgeir Jónsson 2010

Skilaboðaskjóðan

Segðu þína skoðun

Skilabod Hvar eru menn að veiða og hvaða part dags

Nafn Andri | 17. jún. 2012 kl: 06:08

Er hægt að fá uppl. um veið ?? Væri vel þegið : - )

KASA | 13. jún. 2012 kl: 01:53

Það komu tveir kurteisir veiðiverðir og báðu okkur um að sýna veiðikortið í gærkvöld ásamt því að skrá afla í veiðibók. Sjálfsagt mál og varsla til fyrirmyndar. Nú er bara að veiða og veiða og ganga vel um.

Peacock | 12. jún. 2012 kl: 03:27

Skilabod Ég var varla búinn að vera við vatnið meira en í tíu mínútur og kasta nokkrum sinnum, að veiðivörður kom askvaðandi að bílnum mínum, og bað um að veiðikortið sé geymt í framrúðu bílsins, ég kastaði nokkrum sinnum með spún en veiddi ekkert.

Nafn Lárus Baldursson | 05. jún. 2012 kl: 11:16

Skilabod

Nafn | 05. jún. 2012 kl: 11:11

Ég er búinn að fara tvisvar í Þingvallavatn, Þjóðg. Í bæði skiptin lét veiðivörður vita af sér. Í fyrra skiptið var það snyrtileg athugasemd á framrúðu um að Veiðikort eða límmiði ætti að vera sjáanlegt í framrúðu (ég hafði gleymt því). Í seinni skiptið þá var hitti ég hann þar sem hann var að athuga með kort í bílum á stæðinu.

Sigurður Þór | 22. maí 2012 kl: 01:49

Það er allavega eitthvað lítið um vörslu þarna þar til þjóðgarðurinn opnar, en þegar skólafólkið er komið í þjóðgarðsvarðabúningana þá er eins gott að vera með spjaldið í vasanum.

Jón Hrafn | 21. maí 2012 kl: 09:49

Þetta veiðikort er nú meiri brandarinn að verða, er engin veiðivarsla í þessu vatni frekar en hinu draslinu sem þetta kort býður upp á?

Einar | 14. maí 2012 kl: 08:55

Er eitthvað að vakna í vatninu

óði móði | 26. júl. 2011 kl: 08:29

var i elliðavatni aðan og fjekk 1 bleikju og 2 urriða þeir voru yfir 50 cm og yfir 5 pund a þingd

Nafn | 31. maí 2011 kl: 05:36

Þingvellir enn sofandi, það voru ca 10 mans þarna frá 8 - 14 og enginn varð var. U

Guðmundur | 05. maí 2011 kl: 06:24

Skilabod

Nafn | 03. maí 2011 kl: 01:53

ég fékk miljónlaxa

meistari | 08. feb. 2011 kl: 03:47

Skilabod

Nafn | 08. feb. 2011 kl: 03:46

Rölti upp að einbúa vestan við Arnarfellið. Fékk eina ágætis bleikju.

Yngvi | 10. ágú. 2010 kl: 04:08

Skilabod Fór í dag í góðviðrinu. Fékk einn 5,5 punda Urriða á flugu

Nafn Sæþór | 08. ágú. 2010 kl: 06:06

Það kraumar allt af fiski um allt

Gunnar | 04. ágú. 2010 kl: 02:17

Fór í gær, fékk 2 2ja punda á 4 tímum. Ekkert að gerast, engar uppitökur og ég horfði á fiskinn og bauð honum allt...alveg við trýnið á honum, en ekkert gékk

Guðmundur | 30. júl. 2010 kl: 08:10

Erum ný komnir frá Vatnskoti og fengum vænan urriða ca 2 pund. Misstum 3 vænar bleikjur.

Jóhann | 29. júl. 2010 kl: 08:16

Vorum í Vatnskoti nú í kvöld og fengum ekkert.

Pétur | 28. júl. 2010 kl: 11:38

Búin að standa samanlagt í sólahring í 4 ferðum og ekki ennþá orðið var þrátt fyrir að hafa prufað maðk. spún. makríl og flugu.....

Gvendur | 28. júl. 2010 kl: 01:51

Fékk 2 í Vatnskoti ... + murtur, sá svo þegar ligndi nokkrar hlussur 3-5 pund lóna á botninum.

Guðmundur | 28. júl. 2010 kl: 12:54

Fékk 4rar í Vatnsvik, eina ca 3 pund

Guðmundur | 17. júl. 2010 kl: 08:18

engar veiðifrettir??

stjani | 17. júl. 2010 kl: 02:59

Fór í gær, Vatnskot, fékk 1 urriða og 1 bleikju, missti 2 vænar bleikjur. Svo komu 2 pólverjar og stilltu sér upp sitthvoru megin við mig og fóru að grýta spúnum þvers og kruss fyrir framan mig ... varð lítið var eftir það, en þeir slitu upp 2 vænar á járnaruslið.

Guðmundur | 14. júl. 2010 kl: 10:17

Urriðinn er að taka, var í Vatnskoti í kvöld, fékk einn 3ja punda og sá veiðimenn taka nokkra væna, lítið var um murtu.

Jón | 14. júl. 2010 kl: 01:28

Góðan dag, get ég fengið veiðikort í Þingvallavatni ?

Soffía | 14. jún. 2010 kl: 08:13

Hvernig hefur veiðin verið að ganga á Þingvöllum núna í þessari blíðu ? ?

Bleikjan | 26. maí 2010 kl: 02:49

það má ekki stunda veiði frá báti í þingvallavatni

nafnlaus | 23. ágú. 2009 kl: 07:03

Er einhver bátaleiga við þingvallavatn??

Magnús | 21. júl. 2009 kl: 02:14

Heimilt er að veiða í vatninu frá 1. maí. Yfirleitt gefur flugan best en tekið skal fram að bannað er að nota aðra beitu en flugu, maðk og spún.

Veiðikortið | 12. apr. 2009 kl: 10:22

Skv. vef þjóðgarðins er búið að banna makrílinn. Það má ss. BARA nota flugu, spún og maðk.

Íbbi | 06. apr. 2009 kl: 02:03

allur ís er farinn af vatninu. Getur einhver sagt mér hvenær veði hefst í vatninu ? hvaða agn er best að nota ?

bippi | 05. apr. 2009 kl: 10:53

Efnisyfirlit

Leitarvél